Digró og hjalló chicks

07.08.2008 19:44:58 / Sólveig

Afmæli

Sælar skvísur,
Í tilefni af 8 ára afmælinu hennar Anítu Bjarkar verður smá kaffiboð á sunnudaginn kemur, þann 11. ágúst klukkan 16:00.

Endilega smessið á mig og látið vita sem fyrst hvort þið sjáið ykkur fært að mæta.

 Hlakka til að sjá sem flesta:)

Kveðja,

Sólveig


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.05.2008 18:10:22 / Sólveig

Sumarplan...

Sælar skvísurnar mínar,
Ekkert að gerast á síðunni okkar, erum handónýtir bloggarar í orðsins fyllstu merkingu :s

Ég á ekkert líf þessa dagana, alveg bjálað að gera hjá mér í próflestri. Á þessum tíma árs sit ég vanalega kófsveitt fyrir framan tölvuna og bölva veðurguðunum fyrir það að hafa alltaf brjálæðislega gott veður rétt á meðan ég sit inni yfir próflestri... núna bölva ég þeim hins vegar yfir ógeðis rigningu og roki, maður kemst ekki einu sinni út fyrir í eina netta kaffipásu :( 
Litlu skvísurnar mínar sitja hins vegar núna við sundlaugina í bongó blíðu á Spáni.  Mamma og pabbi akváðu að bjóða þeim með sér út yfir proftörnina og ég er vægast sagt abbó akkurat núna :cry:

En ef við tölum nú aðeins um sumarið sem hlýtur að fara að láta sjá sig hérna á skerinu.  Eru þið ekki til í að taka frá aðra helgina í júlí (11.-13) fyrir smá útilegu? Kellur, kallar og börn í hörku stuði einhvers staðar í góða veðrinu :D

Og ekki gleyma að taka frá 17. maí, þá ætlar kellan að hafa smá afmælistjútt ;) ;) ;)

Smell ya later!

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 13:40:35 / Sólveig

...

Gamall maður situr grátandi á almenningsbekk, maður labbar upp að honum og spyr afhverju hann er að gráta.

Gamli maðurinn segir: ég er 86 ára gamall og ég er giftur 24 ára konu sem þrífur fyrir mig og eldar, við stundum kynlíf 6-7 sinnum á dag svo lengi sem ég á bláu pillurnar. Maðurinn spyr hann þá afhverju hann sé að gráta.

Gamli maðurinn segir þá: útaf því að ég er búinn að gleyma hvar ég á heima!


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.12.2007 15:18:21 / hotspot

Jólin, jólin allstaðar...

Gleðilega hátíð kæru vinkonur.

Vona að þið séuð búnar að hafa það gott yfir jólin og að áramótin verði yndisleg!

Getur einhver sagt mér hvar og klukkan hvað hittingurinn okkar er á föstudagskvöldið?  Einhver var búin að hvísla því að mér að þetta væri heima hjá Ásgerði eða Sjöfn kl 8 en nú er ég barasta ekki viss???

Endilega kommentið eða sendið sms:haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 21:07:29 / hotspot

AFMÆLI

Jæja stelpur Alex Máni á afmæli á laug 22 des og verður 5 ára !!.... og það verður partý heima hjá mér Veghús 13, vonast til að sjá ykkur flestar. veit að þetta er ekki besti dagurinn, allir að stússast eitthvað þannig að ég ætla að láta afmælið byrja klukkan 16 og fólk má bara koma þegar það vill ;) bara svona opið hús....

 

Kveðja Una 


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 19:42:09 / Sólveig

Nokkur góð ráð fyrir prófin...

 :haha: Nokkur snilldar ráð fyrir þá sem ekki náðu að læra nóg fyrir prófin:haha:

 

1. Bring a pillow. Fall asleep (or pretend to) until the last 15 minutes. Wake up, say "oh gee, better get cracking," and scribble furiously. Turn it in a few minutes early.

2. Talk the entire way through the exam. Read the questions aloud and debate your answers with yourself out loud. If asked to stop, yell out sarcastically, "I'm so sure you can hear me thinking." Then start talking about what a jerk the instructor is.

3. Make paper airplanes out of the exam. Aim them at the instructor's left nostril.

4. Walk in, get the exam, and sit down. About five minutes into the exam, loudly say to the instructor, "I don't understand any of this. I've been to every lecture this semester! What's the deal? And who are you? Where's the regular guy?"

5. Bring a video game. Play with the volume at max level.

6. On the answer sheet find a new, interesting way to refuse to answer every question. For example, write "I refuse to answer this question on the grounds that it conflicts with my religious beliefs". Be creative.

7. Bring pets.

8. Run into the exam room looking about frantically. Breathe a sigh of relief. Go to the instructor and say "They've found me, I have to leave the country" and run off.

9. Fifteen minutes into the exam, stand up, rip up all the papers into very small pieces, throw them into the air and yell out "Merry Christmas." If you're really daring, ask for another copy of the exam. Say you lost the first one. Repeat this process every fifteen minutes.

10. Do the exam with crayons, paint, or fluorescent markers.

11. Come into the exam wearing slippers, a bathrobe, a towel on your head, and nothing else.

12. Bring things to throw at the instructor when she or he is not looking. Blame it on the person nearest to you.

13. As soon as the instructor hands you the exam, eat it.

14. Walk into the exam with an entourage. Claim you are going to be taping your next video during the exam. Try to get the instructor to let them stay. Tell the instructor to expect a percentage of the profits if they are allowed to stay.

15. Every five minutes, stand up, collect all your things, move to another seat, and continue with the exam.

16. Turn in the exam approximately 30 minutes in. As you walk out, start commenting on how easy it was.

17. At some point during the exam, start crying for mommy.24. Get the exam. Twenty minutes into it, throw your papers down violently, swear loudly and walk out triumphantly.

18. Bring a friend to give you a back massage the entire way through the exam. Insist this person is needed, because you have bad circulation.

19. Answer the exam with the "Top Ten Reasons Why Professor (name) Sucks."

Þorir einhver?????


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 01:18:30 / Sólveig

Desember er kominn!!!

Sælar litlu jólaálfarnir mínirog takk fyrir síðast! Alltaf jafn gaman að hitta ykkur:haha:

Þessa dagana eru flestir að undirbúa sig fyrir jólin, allir komnir í jólagírinn og byrjaðir eða jafnvel búnir að skreyta heima fyrir!  Hins vegar er ég að rembast við að koma mér í smá jólafíling (sjáiði ekki jólaþemað;))ekki búin að ná í jólaskrautið upp á loft og að drepast úr þunglyndi:(  Já þetta er sá tími árs, FJANDANS PRÓFIN ERU AÐ BYRJA:^)  Vildi svo óska þess að prófin væru í nóvember, langar ekki að vera í þessu stressi svona rétt fyrir jól. Verð að farast úr magasári fram að 22. des en þá fæ ég loksins langþráð jólafrí!!!

Hvenær ætlum við svo að hafa rauðvíns jólaglöggina okkar? Getum við neglt það niður sem fyrst svo ég sé pottþétt ekki búin að lofa mér annar staðar:D  Ætluðum við að hafa það 28. des eða var önnur dagsetning betri?

Jæja ætla nú loks að fara að lúlla mér, búin að vera lesa ansi lengi 8|

Over and out....


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 00:27:48 / hotspot

hæ girls ..

hey you guys..

 

er að hugsa um að halda saumó á miðvikudaginn 28. nóv í næstu viku.. hvernig líst ykkur á það?

 

Ásgerður


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 15:36:10 / Sólveig

Afmli, afmæli, afmæli!!!

Hæ,hæ kæru vinkonur.

Nú er hún Laufey Birta alveg að verða 4 ára skvísa! Í tilefni af þessum merka atburði er ykkur öllum, ásamt krílum og körlum boðið í brunch um næstu helgi:)  Nánar tiltekið, laugardaginn 17. nóvember klukkan 11.

Vonast til að sjá ykkur sem flestar :haha:

Endilega látið mig vita hvort þið komist.

Kveðja,

Sólveig.

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 22:12:35 / sigga

sælar babes

Hæ sæturnar mínar ;)

 

Vil bara minna ykkur á laugadaginn kl 3 þið vitið hvar vill ekki skrifa það hér :)

Ef það eru einhverjar spurningar þá bara hringiði í mig ;)

Vonast til að sjá ykkur sem flestar ;)

Kv Sigga


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 16:01:06 / Sólveig

TOYS´R US

Ég varð ekkert smá glöð í vikunni þegar ég fékk auglýsingabækling frá Toys´r us inn um lúguna.  Ég skoðaði hann í bak og fyrir og spenntist öll upp fyrir stóru opnunina.  Ég ætlaði sko að mæta 15 mínútum fyrir opnum svo að ég myndi nú alveg örugglega fá það sem mig langaði að gefa skvísunum mínum í jólagjöf, enda bara 100 eintök í boði:D

Ég klæddi mig í íþróttafötin í morgun, skellti í mig einum hörbó og hélt af stað í ævintýraleiðangur að Smáratorgi, nánar tiltekið Toys´r us.  Mér krossbrá þegar þangað var komið, það var allt troðfullt af bílum og fólki! Ég var greinilega ekki sú eina sem ætlaði að mæta aðeins fyrr :$  Þarna stóð ég eins og hinir vitleysingarnir í endalausri röð, ég held að það hafi verið um 2000 manns á undan mér og önnur 1000 fyrir aftan mig 8|  Þarna stóð ég í ískulda í engu nema örþunnum íþróttagalla, djöfull var mér kalt... en ég lét mig hafa það!  Eftir rúmlega 2 tíma bið komst ég loksins inn en því miður var það sem mig langaði í auðvitað löngu búið:cry:  Bara svekkelsi, geri þetta aldrei aftur!!

Þrusuflott búð samt, og ágætis verð en engan veginn biðannar virði...


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 10:55:49 / Sólveig

Hæ,hæ

Hæ,hæ, og takk fyrir síðast, alltaf gaman að hitta ykkur og hvað þá með grislingana okkar með.  B.t.w. krakkaskarinn er orðinn ekkert smá stór! Fylltum næstum því húsið í afmælinu hjá Nökkva, líst vel á þetta. You go girls :D

Einhvern tíma fyrir löngu, löngu síðan var gerður listi yfir hvar, hver og hvenær kjaftaklúbburinn okkar ætti að vera en einhvern veginn létum við það detta upp fyrir :s  Í síðasta MATARklúbbi hjá Helenu var síðan ákveðið að halda ótrauðar áfram og uppfærðum við því listann góða ;)  Ef þetta hentar einhverri skvísu ekki verið þá ófeimnar við að skipta ykkar á milli :)

September:  Helena

Október:  Erla

Nóvember:  Ásgerður

Desember:  Sjöfn

Janúar:  Sigga

Febrúar:  Una

Mars:  Sólveig

Apríl:  Kidda

Maí: Helena

.... og svo framvegis:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 18:57:35 / hotspot

"Innflutningspartí"

hæ stelpur mínar,

loksins ætla ég að halda innflutningspartí en það verður á laugardaginn næstkomandi.

mæting uppúr 8 bara á þessum típíska partí tíma! :)

 Endilega látið sjá  ykkur !

 Ásgerður


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 22:29:48 / Sólveig

Jeeijjjjjjjjjjjjj!!!!

Þá eru fjandans sumarprófin loksins búinn, damn hvað ég er happy eitthvað, couldn´t be better!!!!  ....jú það mætti svo sem alveg vera betra veður en ætla að chilla með að tuða yfir því alveg strax.

Ég fékk þær yndislegu fréttir þegar ég kom heim á klakann að sæta Sjöfnin okkar væri að fara gifta sig næsta sumar:)  Innilega til hamingju með þetta elskan mín, þetta á eftir að vera svo fallegt hjá ykkur.

Svo var perlan okkar líka að trúlofa sig, allt að gerast þessa dagana... love is in the air!  Til hamingju Erla og Auðunn, þið eruð bara krúttlegust!!!

Annars er bara allt fínt að frétta, er í fríi núna þar til 3. september en þá byrjar geðveikin í HÍ eina ferðina enn... þannig að stelpur ef ykkur langar til þess að hanga á kaffihúsum, pöbbum eða bara einhverstaðar þá er ég game;)

Held ég hafi barasta ekkert meira að segja ykkur í bili....

 

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 16:56:41 / Sólveig

Helló mæ beibs.

Sælar skvízur,

Ég er ennþá í Hollandinu góða, ég er búin að vera að heiman í rúmar fimm vikur núna og finnst þetta vera komið gott.  Það er búið að vera hálf leiðinlegt veðrið hérna, við erum bara búin að fá fjóra sólbaðsdaga annars er bara búið að vera skýjað og blautt:(  Tíminn hefur sem sagt farið í allt annað en að liggja á ströndinni eins og planið var... ég er búin að versla, djamma og djúsa eins og meiníak! Það er búið að vera ROSA gaman og mikið fjör!

Við skelltum okkur í viku ferð til Spánar í síðustu viku.  Hoppuðum upp í bíl algjörlega fyrirvaralaust og keyrðum af stað í átt að sólinni8)  Keyrslan tók hrikalega á og þá sérstaklega á litlu prinsessurnar mínar enda var þetta 25 tíma ferðalag!!!  Á Spáni var yndislegt veður, sól og sumar!  Þannig að við fengum að spranga um strendurnar í tæpa viku eða svo:haha: 

Við Jói keyrðum svo bara tvö heim til Hollands, mamma og pabbi keyptu flugmiða fyrir Söru systur og litlu lömbin sín. Þau gátu ekki hugsað sér að leggja þetta á þær aftur.  En flugiðð gekk sko alls ekki snuðrulaust fyrir sig.  Það var 15 tíma seinkun!!!! Þeim var haldið inni í flugstöð í fucking 11 tíma matarlaus og alls laus!!!! Bara pirrandi þessir spánverjar:^)

Ég kem heim núna á laugardaginn og þá tekur smá lestur við... helvítis sumarpróf!!! Svo vildi ég gjarnan að við myndum hittast allar sem fyrst, það er orðið allt of langt síðan síðast:cry:  Ágúst hittingurinn átti að vera hjá Erlu, er hann búinn þegar ég kem heim? Missi ég af honum???

Let mí nó darlíngs!

Kveðja,

Sólveig


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12